154. löggjafarþing — 46. fundur,  8. des. 2023.

fjárlög 2024.

1. mál
[17:51]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Hér eru mjög áhugaverðir hlutir að gerast. Hér er verið að greiða atkvæði um nákvæmlega það sama og var verið að greiða atkvæði um rétt áðan, sömu upphæð og allt, en samt féll tillagan ekki niður eins og hún hefur gert áður í eins tilfelli, nema meira að segja þá var sama upphæð og var verið að greiða atkvæði um en það var mismunandi tilefni. Hérna er sama tilefni. Þannig að ég endurtek það sem hv. þm. Kristrún Frostadóttir sagði hérna áðan: Það er verið að greiða atkvæði um nákvæmlega það sama.